Kominn tími á smá myndir...eða hvað?
Sólveig að snúa fyrsta bænahjólinu
Falleg stúpa í búddistahverfi Kathmandu - urðum báðar ástfangnar af bænafánunum við fyrstu sýn.
Besisahar - þaðan lögðum við af stað í 2 vikna göngu um Himalaya-fjöllin
Fyrsta brúin sem þurfti að fara yfir. Þær áttu nú eftir að verða verri en þetta. Lofthræðsla mín leitaði sér huggunar í bænafánunum sem höfðu verið hengdir yfir flestar brýrnar. Reyndi að hugsa ekki um af hverju þótti ástæða til að hengja þessa bænafána upp fyrir það fyrsta.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home