Ahh..ég elska þegar hversdagslegir hlutir gera mig glaða og sátta. Dæmi:
* Að hringja í Jónda þegar hann er þunnur. Helst snemma og vekja hann...hahaha. Þá meikar hann ekkert sens heldur röflar bara. Og þetta er jú hversdagslegur hlutur, byttan sem hann er!
* Hvað það búa miklir tossar hér á kollegíinu. Þvottavélarnar eru alltaf allar upppantaðar, en samt get á þvegið allan þvottinn minn hvenær sem ég vil. Úhh.. ég elska hreinan þvott. Og viðurkenni fúslega að vera manískt nörd.
* Að eiga eina skyrdollu eftir í ísskápnum eftir yndislega Íslandsheimsókn. Mmmm..skyr!
* Og að uppgötva tvo flatkökupakka í frystinum.. fara vel með hangikjötsleifunum í ísskápnum. Ahh, úhhh, mmm.
* Yndislega haustveðrið sem er nú í Stokkhólmi. Og hefur verið frá því við komum. Dagarnir sem við vorum heima voru þó víst frekar leiðinlegir. Ahhh hahahaa. Og laufin eru að breyta lit sínum úr gulum og appelsínugulum yfir í hárauðan. Yndislega fallegt og æðislegt.
* Að fylgjast með litlu sirkusdýrunum frændum mínum dunda sér og tralla. Þeir eru fyndnir. Og skrítnir líka. Fyndinn og skrítinn er besta blanda sem ég veit. Húrra fyrir pólsku sirkusfjölskyldunni. Þau eru öll skrítin og fyndin.
Jæja. Nú þegar ég er orðin svona glöð og sátt við lífið og tilveruna er best að skella sér í meinafræðina. Sem er, undarlegt nokk, hið ágætasta fag.
yfir og út og enga sút. Eða eitthvað. Vonandi skilur einhver einhvern tímann um hvað ég er að tala...stundum. Lov jú oll :)
2 Comments:
Um hvað ertu eiginlega að tala?!? Ég skil aldrei neitt af því sem þú talar um.
Haustveður í Stokkhólmi? Hver er þessi Jóndi? Hvaða pólska sirkusfjölskylda? Áttu lítil sirkusdýr?
Hvað er eiginlega í gangi?
Hættu nú að trufla fólk. Hahahah.
Skilur þú e-n tímann um hvað ég röfla? Þú ert allavega eina manneskja sem skilur þegar ég bið þig um að rétta mér málmhlutina (a.k.a. hnífapörin).
Hvað ertu að tala um? Ég drekk ekki. Aldrei gert það!
Skokka bara og borða ís.
Skrifa ummæli
<< Home