What's going on in the kitchen?

cause I don't know what's cooking

miðvikudagur, september 27, 2006

hahaha. en hvað ég er eitthvað æst í að blogga bull nú þegar ég hef einsett mér að hefja loksins lærdómstörn í miðri afslöppuninni. Þetta er ótrúlegt. Inni sit ég en úti spjallar sólin við dýr og menn. Ég gæti farið og tekið þátt í samræðunum. Talað um heimsmálin við litlu sætu hestana hérna niður frá, spjallað um skólann við geiturnar við hliðina á litlu sætu hestunum eða velt mér uppúr skít með svínunum og rætt launamisrétti kynjanna. Nú eða farið ofan í saumana á gangtegundum með stóru, gljáandi hestunum í reiðskólanum hérna aðeins inn með rómantísku gönguleiðinni meðfram strandlengjunni.
Vissuði annars að nú þegar eru stjórnarskipti á þinginu verða fráfarandi ráðherrar á launaskrá í eitt ár í viðbót! Og ef þeir finna sér aðra vinnu, sem er ekki jafn vel borguð og ráðherrastaðan fá þeir greiddan muninn! Þetta finnst mér merkilegt. Held að áætlaður kostnaður við þetta sé um 1 milljarður króna á ári.
Jæja. Held ég sleppi þessu dýraspjalli (hmm...vafasamt orðalag) en haldi áfram í húrrandi sýklafræðilesningu. Ást til ykkar allra.
P.s. hef það eftir mjög áreiðanlegum heimildum að Magni sé hættur í Á móti sól og byrjarður í Gus Gus. jájá. Frá honum Sveinbirni sem allt veit.

4 Comments:

At 3:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hæ inga þú ert svo hressssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx

 
At 2:49 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

mer finnst thetta gott mal ad blogga bara og blogga eins og m...f...

afram inga

thin sys E

 
At 2:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

vodalega entist thetta æst i blogga bull eitthvad vodalega stutt..... hmmm.

kvedjur, fra fru linnet

 
At 4:17 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

jæja, ertu búin að kaupa þér miða hingað???
kv. fröken Ingvarsdóttir

 

Skrifa ummæli

<< Home